Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFV og Samflots fyrir Hornbrekku og Fellsenda
Atkvæðagreiðsla um samkomulag um kjarasamning milli Samflots, f.h. Starfsmannafélags Fjallabyggðar vegna Hornbrekku í Ólafsfirði og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu vegna Fellsenda í Dalabyggð annars vegar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu SFV, hins vegar, með gildistíma frá 1. janúar 2020 til 31. mars 2023.
Á kjörskrá voru: 57
Atkvæði greiddu 46 eða 80.70%
Já sögðu 29 eða 63.04% af greiddum atkvæðum
Nei sögðu 12 eða 26.09% af greiddum atkvæðum
Auðir seðlar 5 eða 10.87% af greiddum atkvæðum
Samningurinn er því samþykktur.
Þetta tilkynnist hér með,
f.h. Samflots Bæjarstarfsmannafélaga
Guðbjörn Arngrímsson formaður.