Hleð......

Á níunda hundrað komin á biðlista hjá Bjargi

Fólk á biðlista sækir um íbúðir sem losna

Í hvert sinn sem íbúðir eru lausar til umsókna sendir Bjarg póst á alla aðila á biðlista með nánari upplýsingum. Ef einstaklingur sem er á biðlista hefur áhuga á tiltekinni staðsetningu þarf að senda umsókn. Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem uppfyllir öll skilyrði um úthlutun hefur lægsta númer á biðlista, að teknu tilliti til forgangs. Sótt er um ákveðna íbúðartegund eða íbúðarstærð sem hentar út frá fjölskyldustærð og í tilteknu húsi. Ekki er hægt að sækja um ákveðnar íbúðir sérstaklega.

Bjarg hefur þegar hafið framkvæmdir við uppbyggingu íbúðakjarna á tveimur stöðum innan Reykjavíkur, í Spöng í Grafarvogi og í Úlfarsárdal. Öll vinna er á áætlun og er reiknað er með þeir sem eru á biðlista geti sótt um fyrstu íbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu í september næstkomandi. Afhending íbúða til leigutaka gæti hafist 1. júlí 2019.

Fleiri framkvæmdir eru í undirbúningi hjá félaginu víða um land, og eru alls 815 íbúðir annað hvort á undirbúnings- eða framkvæmdastigi. Hér að neðan er hægt er að sjá stöðuna á uppbyggingu félagsins eins og hún stendur í dag:

 Framkvæmdir hafnar

  • Móavegur 2-12, Grafarvogi 155 íbúðir. Framkvæmdir í gangi. Fyrsta skóflustunga var tekin í febrúar 2018.
  • Urðarbrunnur 130-132 og 33, Úlfarársdal, 83 íbúðir. Framkvæmdir í gangi. Fyrsta skóflustunga var tekin í apríl 2018.

 Framkvæmdir í undirbúningi

  • Akranes, 33 íbúðir (að Asparskógum 12, 14 og 16). Samningur við verktaka undirritaður. Upphaf framkvæmda áætlað haust 2018.
  • Hallgerðargata, við Kirkjusand, í Reykjavík. 80 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Leirtjörn, Úlfarársdal í Reykjavík. 82 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Bryggjuhverfi, Reykjavík. 29 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Vogabyggð, Gelgjutanga, Reykjavík. 75 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Hraunbær, Árbæ, Reykjavík. 92 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Skerjafjörður, Reykjavík. 100 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Akureyri, 26 íbúðir (í Guðmannshaga 2). Í undirbúningi.
  • Sandgerði, 5 íbúðir (sunnan Sandgerðisvegar). Í undirbúningi.
  • Þorlákshöfn, 11 íbúðir (við Sambyggð). Í undirbúningi.
  • Selfoss, 44 íbúðir (í Björk). Í undirbúningi.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef Bjargs íbúðafélags.

 

Upp